Fréttir frá landsmótinu
Landsmót Gídeonfélagsins var haldið á Reykjum í Hrútafirði dagana 18.-20. september. 45 einstaklingar mættu á svæðið og var helgin frábær í alla staði. Á föstudeginum, rétt eftir kvöldmat, mættu félagsmenn allsstaðar að af landinu í sólskinsskapi. Herbergislyklar voru afhendir og eftir að mótsgestirnir höfðu komið sér vel fyrir var mótið formlega sett.
Dagskrá helgarinnar og ræðumenn voru kynnt, mótið lagt í hendur Drottins, látinna Gídeonmeðlima minnst og yfirskrift mótsins kynnt;
,,Þá heyrði ég rödd Drottins sem spurði: „Hvern skal ég senda? Hver vill reka erindi vort?” Ég svaraði: ,,Hér er ég. Send þú mig.” Jes. 6:8

Ýmsar nýjungar og tæknimál voru kynnt til sögunnar, m.a. ný og glæsileg heimasíðu félagsins. Einnig voru sýnd ný Gídeonkort sem hafa bæst í safn kortanna sem fyrir voru. Félagar voru mjög ánægðir með góðar og jákvæðar breytingar og nýjungar, það verður spennandi að sjá hvað aukin boðunartækifæri munu leiða af sér.
Erlendir gestir á mótinu voru William Young, fulltrúi höfuðstöðva Gídeon í Bandaríkjunum, ásamt konu sinni Diane, og Kaare Nordpol, forseti Gídeonfélagsins í Noregi.
Andrúmsloft mótsins var afslappað og jákvætt. Það var einnig slegið á létta strengi og mikið hlegið, fólk hafði orð á því eftir á hve mikil gleði og góður andi hefði ríkt um helgina.
Að loknu landsmóti fóru nær allir mótsgestir í kirkjuheimsókn til Hvammstanga, þar sem Gídeonstarfið var kynnt. Sú stund var stórgóð og var kirkjan þétt setin. Kynningin hitti í mark og kirkjugestir tóku vel undir í söng. Forseti félagsins tók upp gítarinn og leiddi í léttan söng og vippaði sr. Sigurður sér þá við píanóið í gríðarlegri sveiflu og lofgjörðin fyllti kirkjuna.
Eftir guðsþjónustuna var búið að leggja ýmsar kræsingar á borð. Það sem Gídeonfélögum þótti allra vænst um var að foreldrar 10 ára barna höfðu tekið sig saman og bakað í þakklætisskyni við Gídeonfélagið. Eftir frábært samfélag og gott spjall var svo haldið heim á leið með gleði í hjarta eftir frábæra helgi.
| < Fyrri |
|---|

