Ný styrktarkort

Styrktarkort Gídeonfélagsins eru mikilvæg fjáröflunarleið auk þess sem kortin uppörva og gleðja viðtakandann. Kortin liggja frammi í flestum kirkjum landsins og er hverjum og einum frjálst að taka kortin með sér í trausti þess að greitt verður fyrir þau síðar.

Nú eru nýútkomnar fjórar nýjar gerðir í viðbót við þær tvær gerðir sem notið hafa svo mikilla vinsælda. Um er að ræða tvær nýjar gerðir samúðarkorta, ein gerð með hamingjuóskum og nýr flokkur sem er tækifæriskort sem ber yfirskriftina Mér varð hugsað til þín. Samúðarkortin eru notuð þegar við á og heillaóskakortin eru upplögð á tyllidögum eins og við skírn, afmæli, fermingu, útskrift eða önnur gleðileg tilefni. Mér varð hugsað til þín er kort sem hentar við flest tilefni þar sem hvorki er vottuð samúð né árnað heilla. Þau er hægt að nota til að gleðja eða uppörva hvern þann sem hugsað er til.

Nýju Gídeonkortin

Eftirfarandi sögur eru gott dæmi um þetta:

„Fyrir stuttu átti ég stórafmæli. Af því tilefni fékk ég gjafir sem glöddu mig mikið.
En vænst þótti mér um heillaóskakort Gídeonfélagsins. Mér finnst svo yndislegt að hugsa til þess að aðrir fái mikla gleði yfir því að ég átti afmæli. Þessi heillaóskakort frá Gídeonfélaginu verða til þess að Nýja testamentið verður lagt inn í fangelsi eða sjúkrahús, og þar gæti einhver tekið á móti Jesú sem frelsara sínum.“

Ung kona hafði samband við skrifstofu félagsins og sagði: „Þegar mamma mín dó fékk ég mikið af minningarkortum frá vinum og kunningjum sem ég hafði jafnvel ekki haft samband við í mörg ár. Það kom mér á óvart hvað þessi kort glöddu mig mikið. Ég hef sjálf verið duglegri en ég var við að senda öðrum kort við ýmis tilefni fyrir vikið og hvet aðra til þess líka.“

Þegar þú gefur kort frá Gídeonfélaginu, gefur þú Orð Guðs. Ágóði af útgáfu kortsins fer til kaupa á Nýja testamentinu. Á þann hátt snertir þú við lífi einstaklinga á hótelum, fangelsum, sjúkrahúsum, skólum, biðstofum og víðar.