Útbreiðsluátak í Kólumbíu
Á hverju ári fara Gídeonfélagar í heimsókn á útvalin svæði til að gefa orð Guðs í gríðarlegu magni. Þeir sem taka þátt í átakinu eru í þrotlausri og stífri vinnu allan tímann og greiða sjálfir allan kostnað við þátttökuna en Alþjóðabiblíusjóður Gídeonfélagsins greiðir það efni sem dreift er.
Liðsmenn frá Alþjóðasamtökum Gídeonfélaga settu nýtt met í tveggja vikna útbreiðsluátaki í Kólumbíu í maí 2009 þegar dreift var meira en 1,26 milljón eintaka af Guðs orði.

Í þessu útbreiðsluátaki voru 23 Gídeonfélagar frá sjö þjóðlöndum, auk Gídeonfélaga á staðnum. Megin áherslan var lögð á Bogotá, Kalí og Medellín. Gídeonfélagið var kynnt í þrjátíu kirkjuheimsóknum, þar á meðal í stærstu kirkju höfuðborgar Kólumbíu, Bogotá en meðlimir hennar eru ríflega 45 þúsund. Farið var víðsvegar um borgirnar til að gefa Guðs orð í lögreglustöðvum, herstöðvum, háskólum og öðrum skólum.
Eitt skemmtilegt atvik vitnar um nákvæmni Guðs. Á leið sinni til Kalí var hópurinn stoppaður af vegalögreglu sem gerði leit í flutningabílnum. Ástæðan fyrir því var sú að mafían notar oft samskonar flutningabíla þegar hún smyglar eiturlyfjum. Það skondna við þessa sögu er sú staðreynd að þessir tilteknu lögreglumenn hófu störf snemma um morguninn og misstu því af því þegar Gídeonfélagar heimsóttu lögreglustöðina þeirra. En vegna þessa atviks fengu þeir orð Guðs afhent persónulega í vegakantinum.
| Næsta > |
|---|

