Táknin í Gídeonmerkinu

Einkennismerki Gídeonfélaganna er skemmtilega stílfærð eftirlíking á vopninu sem menn Gídeons beittu í baráttunni við Midíaníta og Amalekíta. Hvítt leirker á bláum grunni og logar rauður logi upp úr því sem kyndill. Kerið er svo umlukið gylltum hring út á jaðri merkisins.

Merki Gídeonfélags Íslands og kvennadeildar

Blár bakgrunnur merkisins táknar hollustu okkar og minnir okkur á að vera trú köllun vorri við Krist og standa undir því að kallast kristin.

Jaðar merkisins er hringur úr gulli. Gullið er tákn fyrir eign Guðs og minnir okkur á að við erum andlega endurfædd Guðs börn sem eigum lifandi samfélag við Hann.

Hringurinn er tákn Guðs, og kristna lífið mótast af því að vera umvafið kærleika Guðs þar sem miðdepillinn er Kristur. „…Ég er Alfa og Omega, upphafið og endirinn. Ég mun gefa þeim ókeypis, sem þyrstur er, af lind lífsins vatns.“ Opinb. 21:6.

Þess vegna er tilbeiðsla og þjónusta við Drottin, upphaf og endir allra þeirra sem svarað hafa kallinu.

Mest áberandi hluturinn er sjálft kerið, sem minnir okkur á það hvernig Gídeon notaði kerin til að vinna bug á herliði Midíans. Dóm. 7:16.

Þótt kerið í merkinu sé vanalega haft til hversdagslegra nota, þá segir það okkur að við getum, þrátt fyrir að vera jarðnesk, helgast til að bera Ljós heimsins og erum ávallt tilbúin að leggja eigin áform til hliðar til að breiða út „Heilagt Orð Guðs,“ Biblíuna, til allra manna.

„..eins er því farið með mitt orð, það er útgengur af mínum munni: Það hverfur ekki aftur til mín við svo búið, eigi fyrr en það hefir framkvæmt það, sem mér vel líkar, og komið því til vegar, er ég fól því að framkvæma.“ Jes. 55:11.

Kerið í merkinu er hvítt að lit, sem er táknmynd hreins lífernis, sem kemur fram hjá þeim sem helgað hafa sig Guði.

Það er því þýðingarmikið að við séum öðrum fyrirmynd að heilbrigðu, góðu og fögru líferni. „…Með því að þér nú, þér elskuðu, væntið slíkra hluta, þá kappkostið að vera flekklausir og lýtalausir frammi fyrir honum í friði.“ 2. Pét. 3:14.

Upp úr kerinu logar eldur, sem minnir okkur á að menn Gídeons geymdu logandi kyndla í kerjunum forðum daga, en loginn táknar orð Guðs sem lýsir okkur inn á hinn rétta veg. „…Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegum mínum.“ Sálm. 119:105. Á öðrum stað segir „…Ég geymi orð þín í hjarta mínu, til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér.“ Sálm. 119:11.

Loginn er sýndur rauður til að minna okkur á blóð Krists, sem úthellt var okkur til endurlausnar og hreinsar okkur af allri synd. „…þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu. Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar. Í honum eigum vér endurlausnina, fyrirgefningu synda vorra.“ Kól. 1:12-14.

Gídeonmerkið er stílhreint og einfalt í allri sinni gerð og hlaðið innihaldsríkum táknum kristinnar trúar.