Trúarbæn læknar

(Vitnisburður úr sjúkrahúsi)

Þegar ég fermdist þá fékk ég að gjöf Nýja testamenti merkt Gídeonfélaginu. Ég hafði alist upp við bæn hjá foreldrum mínum og hafði beðið Drottinn alvarlega að hjálpa mér í nokkur skipti, en ég las Nýja testamentið mitt reyndar aldrei þá, en mér þótt gaman að eiga það og geymdi það alla tíð ofan í skúffu. Það var ekki fyrr en seinna á minni lífsleið að ég átti ekki annan kost en að skoða Guðs orð. Ég var þá á spítala hérna í Reykjavík, þar sem ég lá samfellt í þrjátíu daga, og í skúffunni við hliðina á sjúkrarúminu mínu var rautt Nýja testamenti frá Gídeonfélaginu.

Ég hafði reynt Drottinn og vissi að hann var til staðar, ég óttaðist því ekkert þegar læknirinn kom með þá fregn að það væri ekkert hægt að gera fyrir mig og að mér væri ekki hugað líf.

Þótt hann segði mér einhverjar fréttir þá voru þær ekki slæmar fyrir mig, því ég var búinn að lesa Nýja testamentið þarna á sjúkrabeðinu og ritningarversið, sem ég hafði verið að enda við að lesa þegar hann kom og bjó svo ríkt í hjarta mínu, gaf mér von, en það hljóðar svo:

„Sé einhver sjúkur yðar á meðal, þá kalli hann til sín öldunga safnaðarins og þeir skulu smyrja hann með olíu í nafni Drottins og biðjast fyrir yfir honum. Trúarbænin mun gjöra hinn sjúka heilan og Drottinn mun reisa hann á fætur." Jak. 5:14-15.

Þetta átti ég í hjarta mínu og ég trúði því algjörlega að Drottinn mundi lækna mig. Ég fór því að biðja til Drottins og minnti hann á það að ég hefði gengið í gegnum það að missa föður minn þegar ég var fjórtán ára. Ég var þrítugur þegar þetta gerðist og það væri óhugsandi að láta konuna mína og börnin mín ganga föðurlaus í gegnum sömu erfiðleika og ég þurfti að líða og ég lofaði að þjóna honum ef hann gæfi mér líf. Þarna í bæninni gaf Drottinn mér trúarvissu fyrir því að hann mundi lofa mér að lifa.

Ég hef þjónað Drottni síðan og ég verð alltaf svo þakklátur þegar ég minnist þessa tíma því þennan trúarstyrk fékk ég frá bókinni góðu frá Gídeonfélaginu sem beið þarna eftir mér í skúffunni á sjúkrahúsinu.

Þessi vitnisburður er frásögn Guðlaugs Laufdal í viðtalsþætti á kristilegu sjónvarpsstöðinni Omega þann 13. júní 2000, þar sem framkvæmdastjóri Gídeonfélagsins, Jógvan Purkhús, var gestur þáttarins.