Dýrmætasta og varanlegasta gjöfin
Ákvað að fylgja Jesú Kristi
Maður nokkur kom á skrifstofu Gídeonfélagsins og sagði eftirfarandi:
Ég fékk Nýja testamenti frá ykkur þegar ég var 12 ára og upp úr því fékk ég trúaráhuga og ákvað að fylgja Jesú Kristi. Ég fór að sækja fundi í KFUM við Amtmannsstíg. Á unglingsárunum fór ég á sjóinn, þar sem ég var meira og minna í nokkur ár. Ég hafði alltaf Nýja testamentið með mér til sjós. Það var mér sem einhvers konar andlegur áttaviti.
Smám saman dofnaði samfélag mitt við Krist í nokkur ár eða þangað til ég fór að ala upp mín eigin börn, en ég á eiginkonu og fimm börn. Þá fór ég aftur að leita til Nýja testamentisins sem þið gáfuð mér og styrktist ég verulega í trúnni og í samfélaginu við Guð við lesturinn. Ég sæki nú reglulega kirkju og einnig hef ég sótt Biblíulestra sem boðið hefur verið upp á í fleiri en einni kirkju í Reykjavík.
Maður hefur fengið margar góðar gjafir um ævina eins og föt og fleira sem gengur úr sér. Hrifningin yfir þessum gjöfum varir stutt þótt þær hafi verið gefnar í miklum kærleika af ástvinum. En Nýja testamentið sem þið gáfuð mér þegar ég var 12 ára í Austurbæjarskólanum er dýrmætasta og varanlegasta gjöf sem mér hefur verið gefin, enda varir Guðs orð að eilífu. Ég fullyrði að enginn hlutur eða manneskja hefur haft meiri áhrif á líf mitt en Nýja testamentið sem Gídeonfélagar gáfu mér á sínum tíma. Ég get ekki skýrt þetta frekar, þetta er bara svona.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
